Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

  • Samkeppni um farþega á leið til Bergen
    Vél Norwegian lendir í Keflavík á mánudaginn. VF-mynd: Hilmar Bragi
  • Samkeppni um farþega á leið til Bergen
Fimmtudagur 3. apríl 2014 kl. 09:46

Samkeppni um farþega á leið til Bergen

Áætlunarflug Norwegian til vesturstrandar Noregs hófst á mánudag þegar fyrsta flugið frá Bergen kom til Keflavíkurflugvallar.

Það er boðið upp á áætlunarflug frá Keflavíkurflugvelli til fjögurra norskra borga og hefur aðeins verið samkeppni um farþega á leið til Oslóar. Þangað fljúga Icelandair, Norwegian og SAS allt árið um kring, samkvæmt frétt á vefnum Túristi.is.

Íslenska félagið er það eina sem flýgur til Stavanger og Þrándheims og þar til á mánudag var félagið líka það eina sem bauð upp á ferðir til Bergen. En nú hefur Norwegian blandað sér í baráttuna um farþega á þessari leið og mun félagið fljúga hana tvisvar í viku fram í desember. Icelandair býður upp á allt að daglegar ferðir þangað frá vori og fram á haust.


 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024