Samkaup semur um bókhaldsþjónustu

Matvöruverslanakeðjan Samkaup varð til við sameiningu Samkaupa á Suðurnesjum og Matbæjar, fyrirtækis KEA um matvöruverslun. Hluthafar eru um 300 talsins en þeir stærstu eru Kaldbakur, eignarhaldsfélag KEA og Kaupfélag Suðurnesja. Samkaup er þriðja stærsta matvöruverslanakeðja landsins og var með á níunda milljarð króna í veltu árið 2001. Starfsmenn eru um 500 talsins. Félagið rekur 24 verslanir um allt land undir nöfnunum Nettó, Úrval, Samkaup, Sparkaup, Strax og Kasko. Að auki rekur félagið Valgarð, kostverslun á Akureyri og kjötvinnsluna Kjötsel í Reykjanesbæ.
Grófargil ehf.
Grófargil var stofnað er á grunni þeirrar bókhalds- og fjármálastarfsemi sem Kaupfélag Eyfirðinga hafði innan sinna vébanda og er hið langstærsta sinnar tegundar utan höfuðborgarsvæðisins með um 30 starfsmenn. Grófargil býður bókhalds- og fjármálaþjónustu fyrir jafnt stór sem smá fyrirtæki og er að fullu í eigu Kaldbaks ehf., eignarhaldsfélags KEA.