Samkaup breytist í Nettó: Nýr valkostur í verslun á Suðurnesjum
Nettó opnar í dag nýja og glæsilega verslun sem leysir af hólmi verslun Samkaupa í Njarðvík. Með þessum breytingum verða ýmsar áherslubreytingar sem miða aðallega að því að bjóða hnitmiðað vöruúrval og lægra verð en Nettó er lágvöruverðsverslun eins og flestir vita. Í tilefni af opnuninni verða mörg glæsilegt tillboð í gangi á næstunni, eins og sjá má í blaðauka sem fylgir Víkurfréttum í dag.
Svar við breyttu neyslumynstri
„Meginbreytingn verður fólgin í meira hnitmiðuðu vöruúrvali með fókus á lægstu verð sem við getum boðið upp á. Við teljum að sú hugmyndafræði sem er að baki Nettó henti mjög vel í því árferði sem við erum að upplifa núna. Þetta er okkar svar við breyttu neyslumynstri á Suðurnesjum en það er alveg ljóst að fólk sækir meira í lágvöruverðsverslanir en áður. Við erum með þessu að horfa til framtíðar með því að aðgreina okkur í samkeppninni,“ segir Sturla Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Samkaupa.
Hnitmiðuð vöruúrval í Nettó hefur í för með sér minni breidd í þeim efnum enda gengur rekstur lágvöruverðsverslana út á meiri veltuhraða en í hefðbundinni verslun. Neytendur eiga engu að síður að geta fundið allt sem vantar til heimilisins á einum stað í Nettó, að sögn Sturlu. Eftir sem áður verður boðið upp á mikið vöruúrval, einnig í sérvöru.
Boðið upp á raunverulegan sparnað
„Við ætlum áfram að bjóða upp á góðar vörur, gæðavöru og ferskleika bæði á grænmeti og kjöti. Þrátt fyrir ákvörðun um að loka kjötborðinu í núverandi mynd þá verður boðið upp á mikið úrval í kjöti. Við verður áfram með kjötiðnaðarmann og fólk sem sinnir þeim þætti þannig að við komum til með að fylgjast grannt með þörfum viðskiptavina hverju sinni og reynum að bregðast við því,“ segir Sturla. Þess má geta að áfram verður boðið upp á eldaðan kjúkling sem notið hefur mikilla vinsælda á meðal viðskiptavina Samkaupa.
Auk þekktrar merkjavöru stendur Samkaup fyrir eigin innflutningi á sambærilegri vöru til að bjóða viðskiptavinum ódýrari valkost undir vörumerkjum eins og Coop og Extra sem er enn ódýrari. Með því er höfðað til breiðari hóps viðskiptavina. „Þessar vörur er að finna í öllum okkar verslunum enda hefur það verið keppikefli okkar að bjóða fólki upp á val þar sem það getur raunverulega sparað,“ segir Sturla.
Aðspurður segir Sturla að lágvöruverðslunin Kaskó við Iðavelli verði áfram rekin í þeirri mynd sem verið hefur. Þrátt fyrir að hún sé lítil sé mikið verslað þar enda hafi staðsetning hennar góðar tengingar í allar áttir. „Við viljum áfram vera öflugur þáttakandi í samkeppni hér á svæðinu og veitir ekki af. Það er okkar von að Suðurnesjamenn kunni að meta þessar breytingar og haldi áfram að styðja öflugt fyrirtæki í heimabyggð,“ segir Sturla.