HSS
HSS

Viðskipti

Fimmtudagur 21. október 1999 kl. 23:50

SAMKAUP BÆTIR Í VERSLANAKEÐJUNA

Samkaup opnar nýja verslun á föstudag við Vesturberg í Breiðholti. Verslunin verður rekin undir nafninu „Samkaup“. Síðustu daga hefur verið unnið við breytingar á húsnæði og búnaði verslunarinnar. Verslun þessi var áður rekin undir merkjum „Þinnar verslunar". Samkaup h.f. hefur bætt enn einni verslun í keðju sína en í síðustu viku var verslunin Vöruval í Bolungarvík keypt og hefur Samkaup þegar tekið við rekstrinum. Verslunin verður rekin með óbreyttu sniði fyrst um sinn, en mun hinsvegar síðar í vetur bætast í hóp Sparkaups verslana og fær nýtt útlit og breyttan afgreiðslutíma. Verslanir Samkaupa h.f. eru nú 13 talsins og um áramót bætast í hópinn 6 verslanir á Austurlandi sem verða reknar í samstarfi við Samkaup h.f. Samkaup h.f. í Reykjanesbæ og Kaupfélag Héraðsbúa hafa gert með sér samning um keðjusamstarf. Samningurinn kemur til framkvæmda um næstu áramót og tekur til markaðsmála, sameiginlegra innkaupa, útlits verslana, sameiginlegrar verðstefnu, auk margvíslegra annarra sameiginlegra hagsmunamála. KHB hefur keypt Melabúðina á Neskaupsstað og tekið á leigu verslun KFFB á Fáskrúðsfirði. Ætlað er að þessar verslanir ásamt öðrum versl-unum KHB á Austurlandi muni á fyrri hluta næsta árs fá samræmt útlit, líkt því sem verslanir Samkaupa h.f. hafa í dag. Verslanirnar verða jafnframt frá sama tíma reknar undir nöfnunum Sparkaup og Samkaup. Samstarf þetta á að leiða af sér hagkvæmari rekstur fyrir báða aðila, meira afl í innkaupum og dreifingu kostnaðar. Samkaup h.f. mun koma fram sem samningsaðili fyrir allar verslanirnar varðandi innkaup og sameiginlega þætti aðra. Rekstur fyrirtækjanna verður áfram aðskilinn og hvort fyrirtæki um sig mun sjá um aðra þætti rekstursins, svo sem starfsmannahald og aðra stjórnun.
Bílakjarninn
Bílakjarninn