Sætanýting WOW air 95% í ágúst
- farþegafjölgun 111% á milli ára
WOW air flutti 226.924 farþega til og frá landinu í ágúst eða um 111% fleiri farþega en í ágúst árið 2015. Sætanýting WOW air í ágúst var 95% en það er sama nýting og í ágúst í fyrra. Sætanýting WOW air stóð í stað milli ára þrátt fyrir 112% aukningu á sætaframboði í ágúst nú í ár. Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 152% í ágúst frá því á sama tíma í fyrra.
Það sem af er árinu hefur WOW air flutt um milljón farþega en það er 110% aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður.
„Það er frábært að sjá hvað okkur hefur tekist vel til í sumar ekki síst á nýjum áfangastöðum eins og Los Angelses og San Francisco. Það hefur gengið vonum framar að fylla nýju 350 sæta Airbus breiðþoturnar okkar og erum við þakklát fyrir þær góðu móttökur sem við höfum fengið“ segir Skúli Mogensen eigandi og forstjóri WOW air.
Á síðustu 17 mánuðum síðan WOW air hóf flug til Bandaríkjanna hefur meðalvöxtur í fjölda bandarískra ferðamanna til Íslands verið 67% á milli ára. En á 17 mánuðum áður en félagið hóf flug til Bandaríkjanna var meðalvöxtur 31% á milli ára. Þetta sýnir að aukin samkeppni skilar sér í lægri fargjöldum og aukingu á ferðamönnum til landsins.
Unnið afgreiðslu á þotu WOW air á Keflavíkurflugvelli.