Rúmlega 500 milljóna króna hagnaður hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.

Heildareignir félagsins eru bókfærðar á 12.003 milljónir króna í árslok 2003. Skuldir félagsins námu 7.268 milljónum króna og hafa lækkað milli ára um 1.106 milljónir króna, en félagið greiddi niður langtímalán um 1.070 milljónir króna. Nettóskuldir félagsins, þ.e. skuldir að frádregnum veltufjármunum, hafa lækkað um 653 milljónir króna á árinu. Eigið fé félagsins hefur vaxið úr 3,3 milljörðum króna við stofnun þess 1. október 2000 í 4,7 milljarða þann 31.12.2003. Greiddur var 10% arður til eigenda. Eiginfjárhlutfallið fer úr 34% í árslok 2002 í 39,5% í árslok 2003.
Helstu stærðir ársreiknings (í milljónum króna):
|
2003 |
2002 |
2001 |
Rekstrartekjur m.kr |
4.562 |
4.113 |
4.261 |
Rekstrargjöld án afskrifta |
3.144 |
2.989 |
2.954 |
Hagnaður f. afskriftir |
1.418 |
1.124 |
1.307 |
Afskriftir |
692 |
660 |
571 |
Hagnaður f. fjármunaliði |
726 |
464 |
736 |
Fjármunaliðir |
(119) |
581 |
(1.076) |
Hagnaður f. skatta |
607 |
1.045 |
(340) |
Skattar |
(135) |
(206) |
68 |
Óreglulegar tekjur |
75 |
| |
Hagnaður e. skatta |
547 |
839 |
(272) |
Eignir samtals m.kr. |
12.003 |
12.691 |
12.512 |
Eigið fé |
4.735 |
4.317 |
3.403 |
Skuldir |
7.268 |
8.374 |
9.109 |
Skuldir og eigið fé |
12.003 |
12.691 |
12.512 |
Veltufé frá rekstri |
1.179 |
639 |
889 |
Fjárfestingar |
216 |
397 |
1.372 |
Eiginfjárhlutfall |
39,5% |
34,0% |
27,2% |
Arðsemi eigin fjár |
12,8% |
24,3% |
(7,7%) |
Meðalfjöldi starfa |
116 |
129 |
127 |
Heildartekjur félagsins fyrir árið 2003 námu um 4.562 milljónum króna og jukust því um 11% milli ára. Mikil aukning farþega er helsta ástæðan fyrir þessari tekjuaukningu.
Farþegafjöldi jókst á árinu 2003 eftir samdrátt árið þar á undan. Alls fjölgaði farþegum um rúmlega 12% á milli ára, eða úr tæplega 1.220 þúsund farþegum árið 2002 í tæplega 1.370 þúsund farþega. Farþegum fjölgaði því um tæp 150 þúsund á síðasta ári samanborið við árið 2002. Fjölgun farþega til og frá landinu var rúmlega 18%, en fækkun skiptifarþega var tæplega 12%.
Vísbendingar eru um enn frekari fjölgun farþega á nýju ári einkum vegna aukins áætlunarflugs bæði hjá Icelandair og Iceland Express. Því er reiknað með að í lok árs 2004 verði farþegafjöldi kominn í sama horf og þegar hann var sem mestur árið 2000, eða í um 1.460 þúsund farþega
Vegna mikillar fjölgunar farþega sem fer um Flugstöð Leifs Eiríkssonar mun stöðin verða stækkuð og skipulagi breytt innandyra á næstu tveimur árum. Framkvæmdirnar verða í tveimur áföngum og eru þær þegar hafnar. Fyrri áfanga lýkur áður en sumarannir hefjast og síðari áfanga lýkur snemmsumars 2005. Heildarkostnaður verksins verður allt að 1,2 milljarðar króna.
Gjörbylting hefur orðið á Flugstöðinni í Keflavík á þeim skamma tíma frá því að hið unga félag, Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf., tók til starfa. Félagið er fjárhaglega sterkt og hefur náð að uppfylla þær kröfur og væntingar sem gerðar voru við stofnun þess. Félagið undirritaði nýlega 4,2 milljarða króna lánssamning við KB banka hf. vegna endurfjármögnunar lána félagsins hjá íslenska ríkinu, en það eru um 2/3 af langtímalánum þess. Langtímalán Flugstöðvarinnar hafa lækkað um 1,8 milljarða síðastliðin ár. Í lok árs 2001 voru þau um 8,7 milljarðar króna, en verða komin niður í um 6,9 milljarða króna í ár. Árið 2002 voru um 2 milljarðar endurfjármagnaðir með lánssamningi við Norræna fjárfestingabankann og árið 2003 var 1,1 milljarður af lánum félagsins greiddur niður. Með þessum nýja lánssamningi er endurfjármögnun félagsins lokið.
Stjórn félagsins leggur til við aðalfund, sem haldinn verður 25. mars n.k., að greiddur verði 15% arður til ríkissjóðs. Það er mat stjórnar að vel hafi tekist til með hlutafélagavæðingu gömlu ríkisstofnananna á Keflavíkurflugvelli og að vænta megi mikils af nýja félaginu í framtíðaruppbyggingu flugstöðvarinnar og ferðaþjónustu í landinu.