Risaflugfélagið Emirates skoðar Keflavík
Risaflugfélagið Emirates, sem á heimahöfn í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, hefur sent fulltrúa sína hingað til lands til að kanna innviði á sviði flugrekstrar. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.
Þar segir jafnframt að fyrirtækið hafi um langt árabil haldið úti daglegu flugi milli Kastrup-flugvallar í Kaupmannahöfn og Dúbaí og þá flýgur félagið einnig á Gardermoen-flugvöll í Osló og Arlanda-flugvöll í Stokkhólmi.
Heimavöllur Emirates er alþjóðaflugvöllurinn í Dúbaí en um hann fara u.þ.b. 90 milljónir farþega á ári hverju.