Reykjaneshöfn riftir öllum samningum við Íslenska kísilfélagið
Reykjaneshöfn hefur rift öllum samningum sínum við Íslenska kísilfélagið, þar sem félagið hefur ekki staðið við gerða samninga.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar segir ennfremur að Reykjaneshöfn hafi undirritað kaupsamning um lóð, samning um lóðagjöld og hafnarsamning við Stakksbraut 9 ehf., sem hyggst reisa kísilver á lóðinni Stakksbraut 9 í Helguvík.
Að mati Reykjaneshafnar eru nýju samningarnir ekki lakari en þeir eldri sem gerðir voru við Íslenska kísilfélagið.
Frá þessu er greint á visir.is.