Reykjanesbær selur Magmabréf á rúma 6 milljarða
Reykjanesbær hefur selt skuldabréf sem bæjarfélagið eignaðist við sölu á HS orku til Geysis Green Energy og síðar Magma Energy. Kaupandi bréfsins er Fagfjárfestasjóðurinn ORK sem rekinn er af Rekstrarfélagi Virðingar hf og er fjármagnaður af lífeyrissjóðum og fagfjárfestum. Kaupverðið nemur tæpum 6,3 milljörðum króna.
Sjóðurinn hefur greitt bæjarsjóði Reykjanesbæjar um 3,5 milljarða króna í peningum og um 500 milljónir í markaðsskuldabréfum en samkvæmt samkomulagi milli kaupanda og seljanda fer lokagreiðslan fram eftir 5 ár við uppgjör á skuldabréfinu.
Í framhaldi af sölu bréfsins greiðir bærinn erlent lán. Þar með hefur bæjarsjóður náð að greiða öll erlend lán bæjarins, segir í tilkynningu til kauphallarinnar.
Fjármagnið verður jafnframt nýtt til að greiða upp skammtímalán við lánastofnanir og aðrar skammtímakröfur. Um 870 milljónir króna verða lagðar til Reykjaneshafnar.