Rammagerðin og Sjóklæðagerðin í Leifsstöð

Í tilkynningu vegna samningsins segir að Sjóklæðagerðin selji útvisvar- og sportfatnað en Rammagerðin selur eins mörgum er kunnugt íslenskt handverk. Fyrirtækin taka við þessum vöruflokkum frá Íslenskum markaði sem hlutafélag Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hefur rekið undanfarin tvö ár. Frá og með 1. apríl hætti Íslenskur markaður rekstri í flugstöðinni.