Plexigler í Reykjanesbæ

Plexigler býður upp á fjölbreytta þjónustu og selur jafnt fyrirfram tilbúnar hillur og aðrar hirslur auk þess sem þeir bjóða upp á sérsmíði þar sem komið er til móts við hugmyndir fólks.
Verslunin hefur farið vel af stað að sögn eigendanna og þakka þau góðar mótttökur. Verslunin, sem er í gamla húsnæði Miðbæjar, er opin alla virka daga.