Viðskipti

Óskað eftir tilnefningum til viðurkenninga ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2019
Eigendur Hótel Keflavík hlutu þakkarverðlaun á síðasta vetrarfundi.
Mánudagur 7. janúar 2019 kl. 12:26

Óskað eftir tilnefningum til viðurkenninga ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2019

Líkt og undanfarin ár munu Markaðsstofa Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark veita viðurkenningar til einstaklings eða fyrirtækis sem starfa í ferðaþjónustu á Reykjanesi. Annars vegar eru veitt sérstök hvatningarverðlaun fyrir nýsköpun í ferðaþjónustu og hins vegar viðurkenning fyrir vel unnin störf innan greinarinnar á svæðinu.
 
Óskað er eftir tilnefningum til umræddra viðurkenninga. Tilnefningum ásamt stuttum rökstuðningi skal skilað á netfangið [email protected] fyrir 4. febrúar nk. 
 
Viðurkenningarnar verða afhentar á Vetrarfundi ferðaþjónustunnar á Reykjanesi sem fram fer í mars. Dagsetning og dagskrá fundarins verða tilkynnt fljótlega.
 
Viðurkenningarnar hafa verið veittar síðustu þrjú ár og hafa þessir einstaklingar, fyrirtæki og verkefni orðið fyrir valinu:
 
Þakkarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi
 
2018: Hótel Keflavík, Reykjanesbæ
 
2017: Johan D Jónsson, Reykjanesbæ
 
2016: Reynir Sveinsson, Sandgerði
 
Nýsköpunar- og hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi
 
2018: Duus safnahús, Reykjanesbæ
 
2017: Veitingastaðurinn Vitinn og Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum
 
2016: Listahátíðin Ferskir vindar í Garði
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024