Óskað eftir tilnefningum til viðurkenninga ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2019
Líkt og undanfarin ár munu Markaðsstofa Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark veita viðurkenningar til einstaklings eða fyrirtækis sem starfa í ferðaþjónustu á Reykjanesi. Annars vegar eru veitt sérstök hvatningarverðlaun fyrir nýsköpun í ferðaþjónustu og hins vegar viðurkenning fyrir vel unnin störf innan greinarinnar á svæðinu.
Óskað er eftir tilnefningum til umræddra viðurkenninga. Tilnefningum ásamt stuttum rökstuðningi skal skilað á netfangið [email protected] fyrir 4. febrúar nk.
Viðurkenningarnar verða afhentar á Vetrarfundi ferðaþjónustunnar á Reykjanesi sem fram fer í mars. Dagsetning og dagskrá fundarins verða tilkynnt fljótlega.
Viðurkenningarnar hafa verið veittar síðustu þrjú ár og hafa þessir einstaklingar, fyrirtæki og verkefni orðið fyrir valinu:
Þakkarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi
2018: Hótel Keflavík, Reykjanesbæ
2017: Johan D Jónsson, Reykjanesbæ
2016: Reynir Sveinsson, Sandgerði
Nýsköpunar- og hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi
2018: Duus safnahús, Reykjanesbæ
2017: Veitingastaðurinn Vitinn og Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum
2016: Listahátíðin Ferskir vindar í Garði