Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Viðskipti

Opna sjávarréttabar í Leifsstöð
Fimmtudagur 26. október 2006 kl. 15:15

Opna sjávarréttabar í Leifsstöð

Fylgifiskar og Flugstöð Leifs Eiríkssonar skrifuðu undir samstarfssamning í húsakynnum Fylgifiska á Suðurlandsbraut í dag. Þessi samningur felur það í sér að Fylgifiskar opna sjávarréttabar að erlendri fyrirmynd í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Á sjávarréttabarnum verður boðið upp á kaldan mat og súpur úr fersku íslensku sjávarfangi eins og Fylgifiskar er þekkt fyrir. Guðbjörg Glóð Logadóttir er einn eiganda Fylgifiska sem var stofnað árið 2002 og var hún hæstánægð þegar búið var að setja blek á pappírinn til staðfestingar á samningnum.

„Þetta er spor í rétta átt fyrir okkur í Fylgifiskum. Okkur hafa í gegnum tíðina boðist ýmis tækifæri til að stækka fyrirtækið en alltaf hafnað þeim. Nú teljum við að sé rétti tíminn og vettvangurinn til að stækka fyrirtækið og sannarlega spor í rétta átt.“

Guðbjörg Glóð, sem kemur frá Keflavík, segist búast við því að tvöfalda starfsmannafjöldann með sjávarréttabarnum og vonandi þá með Suðurnesjafólki. „Af fjórum eigendum Fylgifiska erum við þrjú Suðurnesjafólk og við höfum alltaf verið að láta okkur dreyma um að fara með starfsemi á Suðurnesin. Það er vonandi að við náum að manna nýja staðinn með heimafólki en við áætlum að 10-12 manns komi til með að vinna á staðnum í Leifsstöð en það er gaman að sjá hvað það er mikill metnaður fyrir Flugstöðinni,“ sagði Guðbjörg Glóð við Víkurfréttir.

Stefnt er að því að Fylgifiskar fái sitt pláss afhent í aprílbyrjun og telur Guðbjörg að það taki um tvo mánuði að koma aðstöðunni upp en alls verður umráðasvæði þeirra um 100 fermetrar.

„Það hefur aldrei áður verið seldur ferskur íslenskur fiskur í Flugstöðinni svo þetta er sannarlega framfaraspor og við lítum björtum augum til þessa samstarfs.”

VF-myndir/ Hilmir Heiðar – [email protected]

 

Mynd 1: Guðbjörg Glóð Logadóttir og Höskuldur Ásgeirsson takast í hendur eftir undirritun samstarfssamningsins.

Mynd 2: Vel út látið sjávarfang í söluborði Fylgifiska við Suðurlandsbraut í Reykjavík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024