Opin hádegi á þriðjudögum í vetur
	Opin hádegi er yfirskrift hádegisfyrirlestra sem haldnir verða á þriðjudögum í vetur í samstarfi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja, Markaðsstofu Reykjaness, Reykjanes jarðvangs, frumkvöðlasetursins á Ásbrú, Kadeco og Keilis - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs.
	
	Suðurnesjamenn eru hvattir til þess að mæta og fylgjast með því helsta sem er í deiglunni hvort sem það er á sviði nýsköpunar og fræðslu eða einfaldlega hvetjandi í dagsins önn.
	
	Fyrirlestrarnir verða kynntir jafnóðum og verða þeir haldnir á þriðjudögum, bæði í húsnæði frumkvöðlasetursins á Ásbrú Grænásbraut 506, hjá aðilum í ferðaþjónustu og hjá Keili Grænásbraut 910.
	
	Hægt verður að fylgjast nánar með á síðunni http://heklan.is/opinhadegi og í samfélagsmiðlum skipuleggjenda. Áhugasemir eru jafnframt hvattir til þess að skrá sig á póstlistann hér.
	
	12. nóvember: Hópfjármögnun. Ingi Rafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Karolina Fund
	 Fyrsti hádegisfyrirlesturinn verður haldinn þriðjudaginn 12. nóvember n.k. kl. 12:00 – 12:45 en þá mun Ingi Rafn Sigurðsson framkvæmdastjóri Karolina Fund segja frá því hvernig fólk með skapandi verkefni eða sprotafyrirtæki getur sótt fjármagn til almennings í gegnum hópfjármögnun á vefsíðunni karolinafund.com. Karolina Fund er fyrsta hópfjármögnunarsíða landsins að erlendri fyrirmynd en margir kannast eflaust við bandarísku vefsíðuna Kickstarter.

	Nánar hér!
	
	19. nóvember: Öryggi í óbyggðum og ábyrgð leiðsögumanna. Jón Gauti Jónsson, fjallaleiðsögumaður
	Þriðjudaginn 19. nóvember verður Jón Gauti Jónsson fjallaleiðsögumaður með opinn fyrirlestur í Keil. Hann mun meðal annars ræða ábyrgð leiðsögumanna og segja frá nýrri bók sinni „Fjallabókin“. Fyrirlesturinn fer fram í aðalbyggingu Keilis kl. 12:00 - 13:30
	Nánar hér!
	
	Næstu fyrirlestrar verða nánar auglýstir þegar nær dregur.