Miðvikudagur 2. apríl 2008 kl. 11:23
Olís lækkar líka
Olís og ÓB hafa tekið slaginn eftir að N1 og Ego riðu á vaðið og lækkuðu eldsneytisverð í morgun og hafa lækkað verðin niður að sama marki, eða 129,4 kr fyrir bensínlítrann og 138,4 kr. af lítranum af dísilolíu.
Sama verð er á öllum stöðvum fyrirtækjanna.