Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Viðskipti

Öflugt markaðsstarf hjá AwareGO
Mánudagur 8. ágúst 2011 kl. 11:53

Öflugt markaðsstarf hjá AwareGO

Eitt af þeim fyrirtækjum sem hlutu stuðning Vaxtarsamnings Suðurnesja við síðustu úthlutun var fyrirtækið AwareGO, sem er sprotafyrirtæki með aðsetur á Ásbrú í Reykjanesbæ.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

AwareGO gerir lausnir til að auka öryggisvitund fólks. Skortur á öryggisvitund er mesta ógn við nútíma tölvukerfi og eina leiðin til að lágmarka hættuna er regluleg þjálfun og áminningar.

„Öryggi er í eðli sínu þurrt og óáhugavert viðfangsefni því völdum við að gera kennsluna áhugaverða, þ.e. stuttir og skemmtilegir þættir til að vekja umtal og áhuga á öryggismálum s.s. lykilorðum, öryggi tölvupóstssamskipta og fleira.

Með hjálp vaxtarstyrksins vorum við með kynningarbás á Infosec sýningunni í apríl síðastliðnum. Þar fengum við 133 sölutilvísanir og er mikil vinna búin að vera síðan í eftirfylgni á þeim sem hefur skilað sér í sölu til eins banka í Ástralíu og fjölmörg önnur fyrirtæki eru að íhuga kaup á lausninni,“ segir Ragnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri AwareGO á vef Vaxtarsamnings Suðurnesja.

„Þá var okkur boðið í vottunarferli hjá US Department of Homeland Security en það er undanfari þess að bjóða stofnunum DHS lausnina og geysilega sterkt fyrir Bandaríkjamarkað.
Fyrir stuttu fórum við í samstarf með University of Portsmouth bæði varðandi sölu á núverandi lausn og þróun á fleiri lausnum. Samstarfið gefur okkur mikinn gæðastimpil vegna markaðssetningar í Bretlandi,“ segir Ragnar jafnframt.

AwareGO er nýsköpunarfyrirtæki með mikla möguleika þar sem þörfin fyrir þessa tegund varna er alltaf að aukast og fyrirtækið að fá meiri kynningu og athygli, segir á vef Vaxtarsamnings Suðurnesja.