Nýtt tölvuþjónustufyrirtæki
Í dag, opnar nýtt tölvuþjónustufyrirtæki á Borgarvegi 24 í Njarðvík. Fyritækið heitir Totium og eigandi þess er Kristinn Andrés Kristinsson.
Þjónusta Totium felst m.a. í tölvuviðgerðum, uppfærslum og hreinsun. Þá mun fyrirtækið halda úti vefverslun þar sem til sölu verður vélbúnaður, jaðartæki, rekstrarvörur og margt fleira. Þá býður Totium einnig upp á vefsíðugerð, þarfagreiningu vegna hennar, hönnun uppsetningu og viðhald á vefsíðum. Að síðustu býður fyrirtækið upp á hönnun skilta, merkja, límmiða og fleira. Heimsíða Totium er www.totium.is.
---
VFmynd/elg – Kristinn Andrés Kristinsson í afgreiðslu Totium.