Nýtt mótakerfi veldur gjörbyltingu
Fyrirtækið Léttmót ehf í Reykjanesbæ var stofnað nú eftir síðustu áramót en það flytur inn nýja gerð mótakerfa sem fengið hefur frábærar viðtökur í byggingaiðnaði. Kerfið er afar létt og einfalt í meðförum og hefur í för með sér umtalsverðan sparnað. Eigendur Léttmóta eru þeir Bragi Sigurðsson og Héðinn Sigurjónsson.
Að sögn þeirra Braga og Héðins hafa viðtökur á byggingamarkaði hérlendis verðið afar góðar og þurfa þeir félagar að hafa sig alla við til að anna eftirspurninni. Þeir segja sjö ára reynslu komna á kerfið erlendis og hefur það reynst mjög vel. „ Kerfið hefur verið í notkun í 63 löndum og komið mjög vel út við allar mögulegar aðstæður, hvort sem er í Dubai eða Síberíu. Það þolir því bæði mikinn kulda og hita. Helsti kostur kerfisins er sá hvað það er létt og meðfærilegt. Stærsti flekinn er 140x70x10 cm og vegur aðeins 17.6 kg. Það minnkar til dæmis flutningskostnað verulega og sparar krana eða lyftur því kerfið er hægt að setja upp með handafli,“ segja þeir Bragi og Héðinn.
Kerfið er jafnframt einfalt í uppsetningu, sparar ófá handtökin og eykur því byggingahraða án þess að það bitni á gæðum. Kostnaðurinn við uppslátinn er um 40% minni. Efnið sem notað er í mótin tryggir góða endingu, enda springur það ekki né ryðgar. Allar frekari uppslýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu fyrirtækisins www.lettmot.is
Efri mynd: Héðinn Sigurjónsson og Bragi Sigurðsson, eigendur Léttmóta standa hér við nokkra flekana.
Neðri mynd: Héðinn heldur hér á einum þverbitanum en kerfið er létt og afar meðfærileg. VF-myndir: elg.