HSS
HSS

Viðskipti

Nýtt kaffihús opnað í dag
Þriðjudagur 9. desember 2008 kl. 09:46

Nýtt kaffihús opnað í dag



Nýtt kaffihús, Café Keflavík, opnar í dag í miðbæ Keflavíkur. Kaffihúsið er til húsa í nýuppgerðu gömlu húsi að Hafnargötu 26 og tekur útlit og hönnun innandyra mið af því. Eigendurnar eru feðgarnir Jón Grétar Erlingsson og Erlingur Jónsson en markmið þeirra er að bjóða upp á notalegt andrúmsloft í huggulegu umhverfi og er t.d. ekkert áfengi er á boðstólum í Café Keflavík.  Boðið verður upp á kaffi í ýmsum tilbrigðum ásamt ljúffengu meðlæti. Þráðlaust internetsamband er á staðnum.
Café Keflavík er opið miklli kl. 11 og 23 virka daga og 11 til miðnættis um helgar.

VFmynd/elg.

Bílakjarninn
Bílakjarninn