Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Nýtt hátækni fiskvinnslufyrirtæki í Sandgerði skapar 40 störf
Frá undirritun samninga í húsakynnum Sandgerðisbæjar í dag. F.v. Ólafur Þ. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerðis, Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri, Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra, Örn Erlingsson eigandi Marmetis og Rúnar Guðfinsson, framkvæmdastjór
Fimmtudagur 31. janúar 2013 kl. 16:11

Nýtt hátækni fiskvinnslufyrirtæki í Sandgerði skapar 40 störf

-skrifað undir ívilnanasamninga við bæjaryfirvöld og ríkisvaldið

Hátæknifiskvinnslufyrirtækið Marmeti hefur starfsemi í Sandgerði eftir þrjár vikur en í dag var undirritaður fjárfestingarsamningur um skattaívilnanir við Marmeti vegna byggingar fiskvinnslunnar.

Hátæknifiskvinnslufyrirtækið Marmeti hefur starfsemi í Sandgerði eftir þrjár vikur en
í dag var undirritaður fjárfestingarsamningur um skattaívilnanir við Marmeti  vegna byggingar fiskvinnslunnar. Heildarfjárfesting verkefnisins er áætluð 609 milljónir, framleiðslugeta verksmiðjunnar verður um 5.000 tonn og gert er ráð fyrir 41 starfsmanni við rekstur vinnslunnar.

Samningar Marmetis við Sandgerðisbæ annars vegar og ríkisvaldið hins vegar voru undirritaðir í húsakynnum Sandgerðisbæjar. Ívilnanirnar eru í formi afsláttar á tryggingagjaldi og tekjuskatti og af fasteignagjöldum hjá Sandgerðisbæ.

Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra skrifaði undir samninginn fyrir hönd ráðuneytisins og sagði hann mjög ánægjulegan.
„Ég fagna mjög stórhug forsvarsmanna Marmetis og það segir sig sjálft að tilkoma hátæknifiskvinnslu sem veitir 40 manns atvinnu hefur gríðarmikla þýðingu fyrir Sandgerðisbæ og reyndar öll Suðurnesin. Þá fagna ég því sérstaklega að hér er á ferðinni  fjárfestingarsamningur um ívilnanir við íslenskt fyrirtæki en þess misskilnings hefur gætt að lögin um ívilnanir vegna nýfjárfestinga og samningar sem gerðir eru á þeim grundvelli standi aðeins erlendum fjárfestum til boða, en svo er að sjálfsögðu ekki eins og undirritunin hér í dag sýnir. Ég treysti því að fleiri slíkir ívilnanasamningar komi í kjölfarið enda eru þeir öflugt verkfæri til að liðka fyrir nýfjárfestingum og uppbyggingu.“ sagði Steingrímur.

Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerði sagði samninginn hafa jákvæð áhrif til nýsköpunar og uppbyggingar. „Það er mikið fagnaðarefni að fá hingað til Sandgerðis fleiri öflug fiskvinnslufyrirtæki. Fiskvinnslufyrirtækið Marmeti  mun hleypa auknum krafti í atvinnuuppbyggingu hér á svæðinu og bæjaryfirvöld lýsa ánægju með að fyrirtækinu hafi verið valinn staður í Sandgerði.“ sagði Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri Sandgerðisbæjar.

Verksmiðja Marmetis verður búin fullkomnasta hátæknibúnaði til fiskvinnslu sem völ er á og kemur hann allur frá íslenskum framleiðendum eins og Marel og Frost og fleirum. Staðsetning fiskvinnslunnar þykir einkar hentug en hún er í 150 metra fjarlægð frá þeim stað sem Örn KE landar afla sínum og innan við 70 metra fjarlægð frá Fiskmarkaði Suðurnesja. Þá eru einungis 4 kílómetrar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Undanfarna níu mánuði hefur Bragi Guðmundsson, verktaki í Garði unnið við uppsetningu og smíði fiskvinnsluhússins en á hans vegum eru nú tíu manns við störf. Þá var húsið hannað af verkfræðistofunni Verkviti sem einnig er með aðsetur í Garðinum en þangað á eigandi Marmetis, Örn Erlingsson, ættir sínar að rekja. „Það er ánægjulegt að geta sagt frá því að nær eingöngu Suðurnesjamenn hafa unnið við að koma fyrirtækinu upp,“ sagði Örn en hann hefur verið viðloðinn útgerð og fiskvinnslu í áratugi.

Það sem mun skipta hvað mestu máli í vinnslunni hjá Marmetis er kæling fisksins eftir flökun og snyrtingu, áður en hann fer í kassa til útflutnings. Það mun lengja líftíma vörunnar fyrir afhendingu. Þannig mun vinnast meiri tími og svigrúm sem gefur möguleika á að nýta útflutning með skipum sem er mun ódýrari kostur en flugið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra skoðaði aðstæður í Marmeti í Sandgerði með eigendum fyrirtækisins og forráðamönnum Sandgerðisbæjar. VF-myndir/pket.

Séð inn í 2500 fermetra byggingu Marmetis. Hér eru iðnaðarmenn frá Braga Guðmundssyni að störfum í vinnslusal.

Hér er sjónarhorn úr hinum enda salarins. Til hægri má sjá lausfrysti vinnslunnar.