Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Nýstofnað fjárfestingarfélag í orkugeira stefnir að 80 milljarða fjárfestingu víða um heim
Mánudagur 5. febrúar 2007 kl. 15:40

Nýstofnað fjárfestingarfélag í orkugeira stefnir að 80 milljarða fjárfestingu víða um heim

-verður með höfuðstöðvar í Reykjanesbæ. FL Group stærsti hluthafinn-
 
Nýstofnað alþjóðlegt fjárfestingarfélag um sjálfbæra orkuvinnslu, Geysir Green Energy í eigu FL Group, Glitnis, VGK Hönnunar stefnir að því að fjárfesta fyrir 80 milljarða íslenskra króna víða um heim í ýmsum verkefnum tengdum sjálfbærri orkuframleiðslu. Þá mun fyrirtækið leita tækifæra í nýtingu jarðvarma og fjárfestingum í þróun og byggingu jarðvarmaorkuvera.
Gert rer ráð fyrir að Geysir taki þátt í kostnaði við uppbyggingu á orkusetri í bænum í samvinnu við Reykjanesbæ og fleiri sem þekkingu hafa og reynslu í þessum málaflokki. Reykjanesbær mun kaupa 2,5% hlut í félaginu og verða höfuðstöðvar félagsins í bæjarfélaginu. Aðilar horfa mjög til samstarfs við Hitaveitu Suðurnesja sem er framsækið og öflugt orkufyrirtæki.
 
FL Group er leiðandi hluthafi í félaginu sem stofnað var í janúar á þessu ári en auk Glitnis og VGK- Hönnunar er gert ráð fyrir að hlutafé verði selt til innlendra og erlendra aðila. Geysir Green Energy mun einbeita sér að tækifærum í nýtingu jarðvarma, fjárfestingum í þróun og byggingu jarðvarmaorkuvera, annast yfirtöku á jarðvarmaorkuverum í eigu orkufyrirtækja og taka þátt í einkavæðingu orkufyrirtækja þar sem tækifæri gefast. Mikil reynsla er nú þegar innan fyrirtækisins á þessu sviði.
 
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, fagnar því að fá nýjan og öflugan aðila inn í atvinnulíf bæjarins. „Þetta eru gríðarlega jákvæð tíðindi fyrir samfélagið hér. Ég er ekki í vafa um að þetta öfluga fyrirtæki mun virka sem segull á önnur fyrirtæki sem sérhæfa sig á sviði rannsókna og tæknivinnu í orkugeiranum en það mun standa með okkur að uppbyggingu orkugarðs og alþjóðlegs þekkingarsamfélags hér á Reykjanesi. Reykjanesbær, sem stærsti hluthafi í Hitaveitu Suðurnesja, telur skynsamlegt að byggja á reynslu Hitaveitunnar í rannsóknum, vinnslu og rekstri jarðvarmavirkjana hér á landi og við viljum halda forystuhlutverki okkar í því fyrirtæki. Með Geysi Green Energy er komið gríðarlega öflugt útrásarfyrirtæki sem ætlar sér stóra hluti á sviði vistvænnar orku. Við erum stolt af að vera þátttakendur í verkinu og að fyrirtækið sjái þau tækifæri sem hér bjóðast.“

Hannes Smárason, stjórnarformaður Geysis Green Energy, segir FL Group binda miklar vonir við uppbyggingu Geysis Green Energy. ,,Orkugeirinn býður upp á spennandi framtíð og möguleika um allan heim sem Geysir Green Energy stefnir að því að nýta sér. Við fögnum þeim áfanga sem þetta samkomulag felur í sér. Eigendur Geysis vilja byggja félagið upp hratt og örugglega og þetta samstarf mun auðvelda okkur að ná því markmiði“, sagði Hannes og bætti því við að gert væri ráð fyrir að fjárfesta fyrir allt að 80 milljarða íslenskra króna.
 
Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis, segir að mikil starfsemi í kringum jarðvarma hafi byggst upp í Reykjanesbæ. „Þekking og áhugi á frekari uppbyggingu atvinnugreinarinnar er mikill í bænum og ég er mjög spenntur fyrir því samstarfi sem nú er í burðarliðnum. Við teljum að það umhverfi sem hér er fyrir hendi muni skapa Geysi Green tækifæri og hjálpa til að byggja upp það forskot sem fyrirtækið þarf að ná í harðri samkeppni á alþjóða mörkuðum.“

Mynd: Frá undirritun viljayfirlýsingar hlutaðeigandi aðila í morgun.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024