Miðvikudagur 5. desember 2007 kl. 12:36
Nýr viðskiptastjóri fyrirtækja hjá Glitni

Stefanía Valgeirsdóttir hefur verið ráðin viðskiptastjóri fyrirtækja hjá Glitni í Reykjanesbæ. Stefanía hefur starfað sem fjármálastjóri Ný-Fisks ehf í Sandgerði s.l. 2 ár og þar áður framkvæmdastjóri hjá Suðurnes ehf í Reykjanesbæ.
Stefanía er gift Kristmundi Jónssyni og eiga þau saman 2 börn.
Stefanía er búsett í Reykjanesbæ.