Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Nýr veitingastaður í Vogum
Föstudagur 29. september 2006 kl. 11:42

Nýr veitingastaður í Vogum

Nýr veitingastaður hefur verið opnaður í Vogum og ber hann heitið Víkingurinn. Staðurinn er í rúmgóðu 320 fermetra húsnæði að Iðndal 10 og eigendur þess eru Katrín Jónsdóttir og Þór Karlsson. Í húsnæðinu var áður fiskvinnsla og hefur salurinn heldur betur fengið andlitslyftingu til að gegna þessu nýja hlutverki. Að sögn Katrínar hefur staðurinn fengið góðar viðtökur og margir nýta sér þjónustu hans í hádeginu.
Boðið upp á allan venjulegan hádegismat í hádeginu en Víkingurinn er opinn frá kl. 11-2 og 17-22 virka daga. Auk þess er að finna á matseðlinum hefðbundna rétti að ógleymdum pizzum og hamborgurum.
Um helgar er stílað inn á pöbbastemmningu en opið er til kl. 03 á föstudags- og laugardagskvöldum. Þá er hægt fá salinn leigðan undir hvers kyns mannfagnaði.

Mynd: Við barinn á Víkingnum í Vogum. VF-mynd: elg
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024