Nýr staður-nýjar vörur

„Þetta er allt annað líf. Við erum á besta stað núna en þar sem við vorum áður var engin göngutraffík“, segir Hafdís sem er ánægð með viðbrögð viðskiptavina við nýja staðnum. Smart býður nú upp á meiri þjónustu en áður auk nýrra vörumerkja. „Við erum nýkomin með Triumph undirföt og sloggi unglingalínu til viðbótar við eldri merki s.s. Bali og Wonderbra. Haustlínan er síðan væntanleg um miðjan ágúst en þangað til verður útsalan í fullum gangi.“
Smart-neglur sem eru í eigu Ragnheiðar Gunnarsdóttur verða með aðstöðu í versluninni. Ragnheiður býður upp á gelneglur en sú nýjung hefur bæst við að nú gefst viðskiptavinum kostur á að fá gelneglur á táneglur. Ragnheiður býður upp á neglur frá Professionails.