Nýr ráðstefnusalur í Reykjanesbæ?
Hótel Keflavík:Steinþór Jónsson, eigandi Hótel Keflavíkur, hefur sótt um leyfi til Skipulags- og byggingarnefndar Reykjanesbæjar um að byggja ráðstefnusal ofan á húsnæði líkamsræktarstöðvarinnar Lífsstíls. Nefndin hefur enn ekki tekið ákvörðun um málið þar sem gera þarf grein fyrir bílastæðamálum áður en lengra er haldið.