Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Viðskipti

Nýr kínverskur veitingastaður í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 1. júlí 2010 kl. 13:35

Nýr kínverskur veitingastaður í Reykjanesbæ

-Kína Panda í Reykjanesbæ býður upp á ekta kínverskan mat


Hjónin Yi Lin og Xue Wen Zhong hafa opnað kínverskt veitingahús á Hafnargötu 30 í Reykjanesbæ, unnendum austurlenskrar matargerðarlistar til mikillar gleði enda hefur staðurinn fengið góðar viðtökur. Nafn hans er Kína Panda.


Á Kína Panda verður kappkostað að bjóða upp á ekta kínverskan mat, matreiddan samkvæmt kínverskum hefðum sem eiga sér langa sögu í matarmenningu Kínverja.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Á Kína Panda er boðið upp á margréttað kínverskt hádegisverðarhlaðborð fyrir aðeins 1290 krónur á mann með súpu og kaffi. Áhersla er lögð á snögga þjónustu í hádeginu á sanngjörnu verði en á kvöldin er meiri áhersla lögð á notalegheit og nostur í mat og drykk. Kína Panda gerir tilboð fyrir móttöku hópa og bjóða sérstakan sal í samstarfi við Manhattan við hliðina. Manhattan selur jafnframt mat úr eldhúsi Kína Panda, þ.e. létta rétti við ýmis tilefni, hvort sem verið er að horfa á boltann eða halda starfsmannapartí.


Kína Panda er opinn frá kl. 11-22 virka daga og 16-22 um helgar. Take-Away nætursala verður um helgar í gegnum lúgu og stefnt er á heimsendingar næsta vetur.

Myndir:

Kínverskar vorrúllur og pekingönd að hætti Pöndunnar. Hvorutveggja bragðaðist frábærlega. VFmyndir/elg.

Efsta myndin:

Yi Lin og Xue Wen Zhong eru eigendur Pöndunnar.