Bygg
Bygg

Viðskipti

Nýr Hyundai Tuc­son frum­sýnd­ur hjá GE bílum í Reykjanesbæ
Laugardagur 29. ágúst 2015 kl. 11:22

Nýr Hyundai Tuc­son frum­sýnd­ur hjá GE bílum í Reykjanesbæ

GE bílar í Reykjanesbæ kynna í dag nýja og mikið breytta gerð af fjórhjólabílnum Hyundai Tucson sportjeppanum. „Við afhendum fyrsta bílinn strax eftir helgi en erum með góða sýningu núna um helgina,“ sagði Enok bílasali hjá GE bílum.


Hönnun og þróun bílsins fór fram í hönnunarmiðstöð Hyundai í Þýskalandi en framleiðslan fer fram í verksmiðju fyrirtækisins í Tékklandi. Í tilkynningu um frumsýninguna segir að jeppanum sé ætlað að renna frekari stoðum undir þá miklu velgengni sem Hyundai hefur notið meðal bíleigenda í Evrópu, á Íslandi þar á meðal.
Meðal skarpra breytinga á nýja Tucson bílnum er útlitið sem er orðið framsæknara og nútímalegra. Blaðamenn sem hafa tjáð sig um breytingarnar segja þær mestu sem hafa orðið á bíl frá Hyundai á síðustu árum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Að sögn Enoks er Hyundai Tuc­son fáanlegur í nokkr­um út­gáf­um eft­ir búnaðarstigi. Grunn­gerðirn­ar eru Tuc­son Classic og Tuc­son Com­fort sem eru nokkuð vel út­bún­ar, m.a. á 17“ ál­felg­um og með öllu því helsta sem nýir bíl­ar hafa upp á að bjóða í dag. Tuc­son Style hef­ur að auki 360° ör­ygg­is­mynda­véla­búnað með ak­greinavara og neyðar­heml­un og að auki ís­lensk­an leiðsögu­búnað í 8" lita­skjá í mæla­borði. Dýr­asta út­fræsl­an heit­ir Tuc­son Premium sem er á 19“ ál­felg­um. Sá bíll er bú­inn lof­kæld­um fram­sæt­um, raf­drif­inni opn­um á aft­ur­hlera og Panorama gleþaki svo eitt­hvað sé nefnt. Hyundai Tuc­son kost­ar frá 5.490.000 kr.