Bygg
Bygg

Viðskipti

Fimmtudagur 28. september 2000 kl. 14:35

Nýir stjórnendur og breytt svæðisfyrirkomulag hjá Landsbankanum

Landsbankinn vinnur um þessar mundir að víðtækri hagræðingu í útibúaneti sínu en nú fyrir stuttu urðu einnig breytingar á svæðisfyrirkomulagi en þá tók Friðgeir M. Baldursson við starfi svæðistjóra Landsbankans á Reykjanesi og Suðurlandi en Viðar Þorkelsson sem var svæðistjóri á Suðurnesjum lét af störfum nýlega. „Hagræðing á útibúaneti Landsbankans miðar að lækkun kostnaðar og nýting á tækifærum sem í dag bjóðast á nútíma fjármálamarkaði“, segir Friðgeir en hann er vel kunnur á Suðurnesjum en hann var áður en hann varð útibússtjóri á Selfossi, útibússtjóri Landsbankans í Grindavík. „Landsbankinn hefur síðustu ár skipt landinu í níu viðskiptasvæði, þar af voru sex á landsbyggðinni. Yfirmaður hvers svæðis kallast svæðisstjóri og er rekstrarleg ábyrgð í hans höndum. Við svæðisstjórabreytinguna gafst að sögn Friðgeirs tækifæri á hagræðingu með sameiningu tveggja svæða og um leið fækkun í yfirstjórn bankans. Ákveðið hefur verið að fækka svæðum á landsbyggðinni og var fyrsta skrefið að sameina Reykjanes og Suðurland undir stjórn Friðgeirs. Um leið vill Landsbankinn leggja ríka áherslu á sjálfstæði og mikilvægi hvers útibús innan svæðisins. Þar er útibússtjórinn í forsvari á hverjum stað og leggur hann allar meginlínur starfseminnar, stýrir markaðsmálum, stjórnar útlánastarfsemi og tengir starfið við svæðisstjóra og yfirstjórn bankans. Starf svæðisstjóra er hins vegar að tengja starfsemina innan hvers svæðis saman og stilla við markmið bankans hverju sinni, fara með starfsmannamál, ýmis samningamál og fleira. Svæðisstjóra og útibúum til aðstoðar og sérfræðiþekkingar eru sérfræðingar í fyrirtækjaviðskiptum og einstakingsviðskiptum, þ.m.t. forstöðumenn Landsbréfa hf. Með nýrri svæðaskipan, eftir sameiningu, er viðskiptasvæði Landsbankans á Suðurnesjum hluti starfseminnar frá Reykjanesskaga og Hafnarfirði yfir Suðurlandið til og með Djúpavogi. „Þetta er svona aðeins í áttina að nýju kjördæmaskipan en þó ekki alveg“, sagði Friðgeir. Útibússtjórar Landsbankans á Suðurnesjum eru Jóhanna E. Óskarsdóttir í Keflavík, Guðjón Sigurðsson í Sandgerði, Valdimar Einarsson í Grindavík, Hrafnhildur S. Sigurðardóttir, afgreiðslustjóri í Leifsstöð og Anna Margrét Guðmundsdóttir sem er nýráðinn forstöðumaðurr Transit/Change Group, dótturfyrirtækis Landsbankans.
Bílakjarninn
Bílakjarninn