Ný sjoppa opnar á Ásbrú
Þegar maður er atvinnulaus og hefur engan áhuga á að sitja aðgerðarlaus heima, þá er aðeins um eitt að ræða. Að finna sér eitthvað að gera. Óskar Óskarsson var kominn í þessa stöðu. Konan var kasólétt og hann bráðvantaði vinnu.
Á Ásbrú hefur ekki verið matvöruverslun eða sjoppa síðan Samkaup Strax lokaði verslun sinni fyrir að verða tveimur árum. Óskar hafði augastað á húsnæði við Keilisbraut, þar sem rekin var rakarastofa á tímum Varnarliðsins. Hann hafði samband við Háskólavelli, sem eru eigendur húsnæðisins. Eftir um mánaðarvinnu við að standsetja húsnæðið hefur nú verið opnuð lítil sjoppa þar sem einnig má fá nauðsynjar eins og mjólk, brauð, morgunkorn og bleiur, svo eitthvað sé nefnt.
Óskar stendur vaktina í Sjoppunni Ásbrú frá kl. 08 á morgnana virka daga og til kl.13. Þá er lokað en opnað að nýju kl. 16 og opið til kl. 22. Laugardaga er opið frá kl. 10-24 og á sunnudögum er opið kl. 11-22. Sjoppan er í sama húsi og Langbest á Ásbrú en inngangurinn er um dyr við gamla innganginn í Samkaup Strax.
Sjoppan á Ásbrú er með nammibar þar sem er 50% afsláttur föstudaga og laugardaga.
Í samtali við Víkurfréttir sagði Óskar að móttökur við sjoppunni hafi verið framar vonum, sérstaklega í ljósi þess að hún hafi ekkert verið auglýst öðruvísi en með tilkynningu á íbúavef Ásbrúar á Fésbókinni og með dreifimiðum í póstkassa á Ásbrú.
Vöruúrval í sjoppunni verður aukið jafnt og þétt. Allt verði þetta að gerast í rólegheitum, það borgi sig ekki að fara of hratt af stað í svona rekstri. Þá sé hann að taka niður óskalista frá viðskiptavinum varðandi þær vörur sem ættu einnig heima í sjoppunni.
Óskar segist ætla að vera samkeppnishæfur við aðrar sjoppur en það sé ljóst að hann geti ekki boðið samkeppnishæf verð við lágvöruverðsverslanir. Hann hafi strax á fyrstu dögunum fengið að kynnast því að heildsölur séu að bjóða honum vörur á hærra verði en þær fáist í Bónus og Nettó. Hann reyni þó að selja nauðsynjar á eins sanngjörnu verði og mögulegt sé miðað við aðstæður.
Allar nánari upplýsingar um Sjoppuna Ásbrú má finna á Facebook.com/sjoppanasbru.