Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Ný Corsa frumsýnd í Reykjanesbæ
Nýja Corsan frá Opel.
Laugardagur 7. mars 2015 kl. 12:00

Ný Corsa frumsýnd í Reykjanesbæ

Ný Opel Corsa verður frumsýnd í dag, laugardaginn 7. mars hjá Bílabúð Benna í Reykjanesbæ.  Nýja Corsan er afar sportlegur fimm manna bíll sem kemur virkilega á óvart fyrir óvenju fullkominn tækni- og öryggisbúnað, ferska hönnun, sprækar vélar, sparneytni og frábært verð.

Opel merkið hefur verið á mikilli uppleið í Evrópu og hlotið ótal hönnunar- og gæðaverðlaun að undanförnu. Metnaður Opel er gríðarlegur og er 4 milljarða evra fjárfesting fyrirtækisins í þróun á nýjum bílgerðum til marks um það. Það þýðir að fram til ársins 2018 gerir fyrirtækið ráð fyrir að kynna eina 27 nýja bíla og 17 nýjar bílvélar. Afraksturinn er að skila sér, jafnt og þétt, og nú er komið að fimmtu kynslóðinni af Corsa. Mikil eftirvænting hefur ríkt fyrir komu hans, enda ein mest selda einstaka bílgerðin sem framleidd hefur verið í Evrópu, með 12,3 milljón eintök seld frá markaðssetningu hans árið 1982. Nýi bíllinn hefur greinilega staðið undir væntingum jafnt gagnrýnenda sem neytenda, en nú í desember, aðeins þremur mánuðum eftir frumsýningu hans í Frankfurt, höfðu borist yfir 55 þúsund pantanir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hér er flott myndband með bílnum.