Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Norðurál semur við þrjá erlenda banka um umsjón fjármögnunar Helguvíkur
Föstudagur 11. september 2009 kl. 09:54

Norðurál semur við þrjá erlenda banka um umsjón fjármögnunar Helguvíkur

Norðurál hefur samið við bankana BNP Paribas, Societe Generale og ING um umsjón með fjármögnun byggingar álversins í Helguvík. Bankarnir munu leiða verkefnafjármögnun vegna framkvæmdanna á alþjóðlegum lánamörkuðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðuráli.

Samkvæmt nýgerðum Stöðugleikasáttmála Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, BSRB, Kennarasambands Íslands, SSF, Samtaka atvinnulífsins, ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga, hefur ríkisstjórn Íslands samþykkt að greiða götu þegar ákveðinna stórframkvæmda sbr. þóðhagsáætlun, s.s. framkvæmda vegna álvers í Helguvík. Kappkostað verður að engar hindranir verði af hálfu stjórnvalda í vegi slíkra framkvæmda eftir 1. nóvember 2009. Sveitarfélög og önnur stjórnvöld tryggi að farið verði að tímafrestum við gerð skipulags og allar leyfisveitingar og greitt verði fyrir nýjum fjárfestingum eins og kostur er.

“Það er ánægjulegur áfangi að hafa skipað sér við hlið þessara sterku banka,” segir Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Norðuráls. “Við höfum átt árangursríkt samstarf við þessa banka vegna fjármögnunar framkvæmda við álverið á Grundartanga allt frá árinu 1997 og þeir sýna fyrirhugaðri framkvæmd í Helguvík mikinn áhuga. Nú er mikilvægt að orkufyrirtækin geti komið sínum áætlunum í framkvæmd .”

Áætlað er að álframleiðsla hefjist í Helguvík síðla árs 2011. “Við leggjum allt kapp á að byggingaframkvæmdir við þetta gríðarlega mikilvæga verkefni komist á fullt skrið ” bætir Ragnar við. “Það er hart lagt að okkur úr öllum áttum að þessari framkvæmd miði áfram vegna þeirra starfa sem hún mun skapa og þeirra jákvæðu áhrifa sem hún mun að hafa á íslenskt efnahagslíf,” segir Ragnar í tilkynningunni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024