Nettó opnar tíundu verslunina á Selfossi
Á sama tíma og verslanakeðjur landsins eru almennt að loka einingum eða skerða þjónustu er Nettó að opna sína 10. verslun á landinu á Selfossi næsta föstudag. Að sögn Gunnars Egils forstöðumanns rekstrarsviðs Samkaupa hefur Nettó átt gríðarlegum vinsældum að fagna og nú síðast var Mjóddin gerð að fyrstu lágvöruverðsverslun landsins með sólahrings opnun. Viðtökur við sólahringsopnuninni hafa verið gríðarlega góðar.
Nettó verslunin við Austurvegi 42 á Selfossi er rúmlega 1.000 fermetra verslunarrými á besta stað. Verslunin verður byggð upp í sama stíl og aðrar Nettó verslanir. Lögð verður áhersla á lágt verð og mikið vöruval og sett verður upp úðunarkerfi í grænmetistorgi sem viðheldur lengur ferskleika ávaxta og grænmetis. Vöruval í dagvöru verður mikið og hefðbundin sérvara á góðu verði verður á sínum stað. Sett verður upp „Bakað á staðnum“ sem slegið hefur í gegn í Nettó verslunum að sögn Gunnars Egils.
Nettó er lágvöruverðsverslun í eigu Samkaupa hf. er í meirihlutaeigu Kaupfélags Suðurnesja. Samkaup hf. reka um fimmtíu smásöluverslanir víðsvegar um landið. Aðal skrifstofur félagsins eru í Reykjanesbæ.