Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Viðskipti

  • Nettó opnar á Iðavöllum í Reykjanesbæ
    Úr nýrri verslun Nettó við Iðavelli í Keflavík þar sem áður var Kaskó.
  • Nettó opnar á Iðavöllum í Reykjanesbæ
    Úr nýrri verslun Nettó við Iðavelli í Keflavík þar sem áður var Kaskó.
Föstudagur 13. maí 2016 kl. 17:33

Nettó opnar á Iðavöllum í Reykjanesbæ

Ný Nettó verslun á Iðavöllum í  Reykjanesbæ opnaði í dag. Þar var áður rekin Kaskóverslun. Nettó verslunin er byggð upp í sama stíl og aðrar Nettó verslanir þar sem áhersla er lögð á lágt verð og mikið vöruval auk þess sem meira verður um eigin innflutning Nettó. Verslunin verður opin alla helgina kl. 9-21

Sett hefur verið upp úðunarkerfi í grænmetistorgi sem viðheldur lengur ferskleika ávaxta og grænmetis auk þess sem boðið verður upp á „Bakað á staðnum“ sem notið hefur mikilla vinsælda í Nettó verslunum, enda lagt upp með mikil gæði, lágt verð og regluleg tilboð.

„Með þeim breytingum sem við höfum gert á Iðavöllum komum við til móts við þarfir viðskiptavina sem og aukinn fjölda ferðamanna sem leggja leið sína í Reykjanesbæ,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, forstöðumaður verslunarsviðs Samkaupa.

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, opnaði búðina og í tilefni dagsins undirrituðu forsvarsmenn Samkaupa styrktarsamning við Meistaraflokk kvenna í knattspyrnu í Keflavík, Golfklúbb Suðurnesja og Púttklúbb Suðurnesja.

Public deli
Public deli