Minni verslanir mega hafa opið
Á hvítasunnudag verður heimilt að hafa þær matvöruverslanir opnar sem eru að hámarki 600 fermetrar að stærð og a.m.k. tveir þriðju hlutar veltunnar er sala á matvælum, drykkjarvöru og tóbaki. Nýsamþykkt breyting á lögum um helgidagafrið gerir þetta að verkum. Heimild til að hafa slíkar verslanir opnar gildir einnig á föstudaginn langa og páskadag.