Mikil eftirspurn eftir bréfum
Hlutafjárútboði Bakkavör Group hf. er lokið. Alls skráðu fjárfestar sig fyrir 1.238 milljónum króna að söluvirði, en í boði voru 200 milljónir króna að nafnvirði á genginu 4,9 eða samtals 980 milljónir króna að söluvirði. Hlutafjárútboðinu var beint að fagfjárfestum og var umsjón þess í höndum Kaupþings hf.