Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Maris tekur þátt í Hönnunarmars 2015
Fimmtudagur 19. febrúar 2015 kl. 10:40

Maris tekur þátt í Hönnunarmars 2015

Maris, hönnunarklasi Suðurnesja tekur þátt í Hönnunarmars 2015 í samstarfi við Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes jarðvang en þar verður kynntur skapandi kraftur af Reykjanesi.

Nú starfa þrettán hönnuðir í Maris sem setti síðast upp sýningu í Duushúsum sumarið 2014. Markmið klasans er að efla nýsköpun í hönnun á Suðurnesjum og efla hönnuði og hefur verkefnið verið styrkt af Vaxtarsamningi Suðurnesja.

Sýningin verður í Höfuðborgarstofu og mun fagráð velja inn þátttakendur en forgang hafa félagar í Maris.

Leitað er til hönnuða á Suðurnesjum sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu og er þeim bent á að hafa samband við Söru Dögg Gylfadóttur á netfangið [email protected] eða í síma 699 2604.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024