Viðskipti

Margrét Sanders endurkjörin formaður SVÞ
Fimmtudagur 23. mars 2017 kl. 13:47

Margrét Sanders endurkjörin formaður SVÞ

Njarðvíkingurinn Margrét Sanders var endurkjörin formaður Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) á aðalfundi samtakanna sem var haldinn í dag. Margrét starfar sem ráðgjafi hjá Strategíu og hefur setið sem formaður samtakanna frá árinu 2014.

„Verslun og þjónusta á Íslandi stendur á tímamótum, samkeppnin hefur aldrei verið meiri og áskoranir hafa sjaldan verið jafn margar. Samtökin hafa löngum barist fyrir afnámi tolla og gjalda. Nú um áramótin var síðasti tollamúrinn afnuminn og telja samtökin það mikið framfaraskref fyrir neytendur og verslunareigendur. Við höfum einnig talað fyrir því að ríki og sveitarfélög úthýsi mun fleiri verkefnum til einkafyrirtækja. Það hefur jákvæð áhrif á nýsköpun og þróun og eykur jafnframt skilvirkni og dregur úr kostnaði.“ segir Margrét Sanders, formaður SVÞ á fundinum.

Public deli
Public deli