Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Lífleg viðskipti á stofnfjármarkaði Spkef síðustu daga
Fimmtudagur 15. febrúar 2007 kl. 10:51

Lífleg viðskipti á stofnfjármarkaði Spkef síðustu daga

Engar verulega breytingar urðu á markaði með stofnfjárbréf í Spef við birtingu ársreiknings bankans á dögunum enda var lítið framboð á bréfum í upphafi mánaðarins. Ársreikningurinn sýndi metafkomu eins og áður hefur verið greint frá.

Viðskiptin með stofnfjárbréf hafa verið líflegri síðustu daga og hefur verðið verið í bilinu 5,65 til 5,7. Staðan eftir þriðjudaginn var sú að kauptilboð var inni á genginu 5,75 og sölutilboð á genginu 7,5 sem er í takt við það sem verið hefur á markaðnum undanfarið, skv. sem fram kemur á heimasíðu Spkef.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024