„Leitum leiða til að leggja fjölskyldum lið á einhvern hátt“
„Mitt hlutverk sem verkefnisstjóri er að halda utan um formlegt starf sveitarfélaganna á Suðurnesjum á sviði velferðarmála,“ sagði Lovísa Lilliendahl, verkefnisstjóri hóps á vegum velferðarráðuneytisins. Lovísa er uppalin í Keflavík og hefur búið þar alla tíð fyrir utan námsdvöl erlendis. Hún útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og fór síðar í nám til Boston í Bandaríkjunum þar sem hún lauk BA-gráðu í almannatengslum. Stuttu eftir að Lovísa kom heim hóf hún störf hjá Bláa lóninu þar sem hún starfaði í rúm fimm ár við markaðs- og kynningarmál. Þá ákvað Lovísa að leggja stund á frekara nám og lauk meistaranámi í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskóla Íslands sl. vor.
Í dag starfar hún eins og áður segir sem verkefnisstjóri hjá velferðarráðuneytinu þar sem hún vinnur að eflingu velferðar á Suðurnesjum. „Samstarfshópur um velferð á Suðurnesjum var myndaður í kjölfar fundar sem haldinn var í október sl. að ósk velferðarráðherra í þeim tilgangi að fá upplýsingar um ástandið á Suðurnesjum. Þar kom fram að sveitarfélög óskuðu eftir aðstoð við að efla samstarf sveitarfélaganna á svæðinu varðandi velferðarmál og var orðið við þeirri beiðni,“ sagði Lovísa. „Í hópnum situr fjölbreyttur hópur lykilfólks á Suðurnesjum, þar á meðal allir félagsmálastjórar svæðisins, fulltrúar frá verkalýðshreyfingunni, Rauða krossinum, sex ríkisstofnunum, kirkjunni, skólameistari Fjölbrautaskólans og fulltrúi fræðsluskrifstofunnar. Samstarfshópurinn starfar á vegum velferðarvaktarinnar sem heldur jafnframt utan um verkefnið fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.“
Lovísa sagði hlutverk velferðarvaktarinnar vera að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna.
Reiknað er með að þetta sérverkefni á Suðurnesjum vari í að minnsta kosti 2 ár og ef vel gengur gæti það mögulega orðið fyrirmyndarverkefni sem aðrir landshlutar gætu ýtt úr vör. „Suðurnesin hafa orðið hvað verst úti í kjölfar bankahrunsins og við í samstarfshópnum leggjum ríka áherslu á að reyna að leita leiða til þess að leggja einstaklingum og fjölskyldum sem eiga í erfiðleikum lið á einhvern hátt.“
Lovísa segir atvinnumálin ekki í raun á könnu velferðarráðuneytisins „en að sjálfsögðu látum við okkur þau mál varða þar sem atvinnuleysi hefur áhrif á velferðarmál,“ bætti hún við. „Eins og við Suðurnesjabúar höfum orðið vör við, þá miðar málum hægt hvað varðar atvinnuuppbyggingu á svæðinu og það hefur valdið okkur miklum vonbrigðum að sjá ýmis verkefni ekki verða að veruleika.“ Eins og er vinnur Lovísa ásamt samstarfshópnum heildstætt að eflingu svæðisins á vegum forsætisráðuneytisins í samstarfi við heimamenn og koma bæði menntamálaráðuneyti og iðnaðarráðuneyti að því verkefni. „Það er aftur á móti mikilvægt að við missum ekki vonina á bjartari tíma og á meðan við göngum í gegnum þessa erfiðleika er það einmitt okkar hlutverk í samstarfshópnum að reyna að tryggja að þetta ástand komi ekki enn frekar niður á velferð íbúa á Suðurnesjum,“ sagði Lovísa að lokum.