Bygg
Bygg

Viðskipti

Landsbankinn eflir fjármálafræðslu í framhaldsskólum
Laugardagur 18. febrúar 2012 kl. 13:02

Landsbankinn eflir fjármálafræðslu í framhaldsskólum

Landsbankinn leggur mikla áherslu á að efla fjármálalæsi og hefur boðið framhaldsskólum upp á fjármálafræðslu með það að markmiði að efla fjármálaskilning nemenda og gera þeim betur kleift að greina valkosti í fjármálum og gera áætlanir til framtíðar. Fræðslan stendur öllum framhaldsskólum landsins til boða og er unnin í samstarfi við fulltrúa þeirra.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ungt fólk í hlutastarfi hjá Landsbankanum sem eru jafnframt háskólanemar sinna fræðslunni fyrir hönd bankans. Meginmarkmiðið með þessu fyrirkomulagi er að fræðslan sé jafningjafræðsla og þar með líklegri til að ná til nemendanna.

Landsbankinn fylgir stefnu um samfélagslega ábyrgð og er fjármálafræðslan í takti við þá stefnu. Sem fjármálafyrirtæki vinnur Landsbankinn markvisst að því að finna leiðir til að efla fjármálalæsi fyrir viðskiptavini og almennt fyrir samfélagið. Með það að leiðarljósi heldur bankinn keppni tvisvar sinnum á ári sem ber heitið Raunveruleikurinn, gagnvirkur hermileikur til að efla fjármálalæsi fyrir unglinga. Ennfremur gefur Landsbankinn út bækling undir yfirskriftinni ,,Fjárráða“ sem miðar að því að efla fjármálalæsi og er sendur til forráða viðskiptavina sem eru að ná 18 ára aldri. Bæklingurinn er einnig aðgengilegur í útibúum og á vefsíðu bankans. Nýr umræðuvefur Landsbankans, Umræðan, var jafnframt settur á fót með það að markmiði að efla fjármálalæsi og skapa vettvang fyrir faglega umræðu um fjármál.