Lággjalda áskriftarsjónvarpið VAL+ hefur útsendingar
Í dag mun fjarskiptafyrirtækið Íslandsmiðill ehf. formlega gangsetja fyrsta þráðlausa stafræna sjónvarpsdreifikerfið á Íslandi. Útsendingasvæðið er í fyrstu einskorðað við suðvesturhorn landsins og nást útsendingar jafnt innan sem utan höfuðborgarsvæðisins en þar eru um 65% heimila landsins. Boðið verður upp á lággjalda áskriftarsjónvarp með hámarksmyndgæðum. Í upphafi verður boðið upp á 9 erlendar sjónvarpsstöðvar ásamt 3 íslenskum stöðvum, allar í stafrænum gæðum. Það sem áskrifandi þarf til að ná útsendingum er endabúnaður sem er innifalinn í þjónustu VAL+. Búnaðurinn tengist yfirleitt hefðbundnum loftnetskerfum bæði í einbýlis- og fjölbýlishúsum. Það er mögulegt að horfa á útsendingarnar í hefðbundnum sjónvarpstækjum.
Hvað er Stafræn sjónvarpsútsending?
Stafræn sjóvarpssútsending hefur þá sérstöðu umfram hefðbundna hliðræna “Analog” sjónvarpsútsendingu að hún nýtir flutningskerfi betur sem leiðir til þess að mögulegt er að flytja fleiri sjónvarpsrásir yfir sambærilegt tíðnisvið. Með stafrænni senditækni aukast myndgæðin mjög mikið þó notast sé við hefðbundin sjónvarpstæki. Stafræn sjónvarpstækni felur ýmislegt annað í sér og má þar nefna möguleika á stafrænni myndbandaleigu en í undirbúningi er að bjóða slíka þjónustu.
Tæknin á bak við kerfi Íslandsmiðils
Sú útsendingatækni sem Íslandsmiðill nýtir sér er að grunni til sama tækni og nýtt er til stafrænna útsendinga frá gervihnöttum sem er mest notaða stafræna útsendingartæknin í dag. Með þeim hætti er mögulegt að samþætta þjónustu gervihnattafyrirtækjanna og VAL+. Þannig ná notendur VAL+ íslenskum sjónvarpsstöðvum ásamt þeim erlendu stöðvum sem VAL+ býður upp á. Með sama myndlykli verður hægt að taka á móti dagskrá áskriftastöðva í gegnum gervihnetti með því að setja upp viðbótar loftnet.
Uppsetningar og gangsetningarverkefni Íslandsmiðils hefur verið tvíþætt:
A) Byggja upp þráðlaust breiðbandsflutningskerfi.
B) Koma þjónustu um þetta kerfi til áskrifenda.
Íslandsmiðill einbeitir sér fyrst og fremst að því að byggja upp og reka dreifikerfi og er þess vegna skilgreint sem fjarskiptafyrirtæki. Val+ er aftur á móti dreifingaraðili efnisveitna og veitir efni um flutningskerfi Íslandsmiðils. Það er stefna fyrirtækisins að leggja höfuðáherslu á fjarskiptaþáttinn og fá aðra aðila eða fjölmiðlafyrirtækin til þess að reka efnisveitu og annarskonar virðisaukandi þjónustu.
Útsendingarsvæði
Með einum langdrægum sendi sem staðsettur er á Bláfjallasvæðinu nást eftirfarandi landssvæði útsendingar Íslandsmiðils að mestu leyti:
Reykjavík og nágrenni
Reykjavík
Kópavogur
Garðabær
Hafnarfjörður
Mosfellsbær
Vesturland
Akranes
Sunnanvert Snæfellsnes
Suðurnes
Keflavík
Njarðvík
Vogar
Garður
Suðurland
Eyrarbakki
Stokkseyri
Selfoss
Hvolsvöllur
Hella
Einnig ná heimili utan þéttbýlisstaða móttöku og þjónustu VAL+
Framboð af erlendu og innlendu skemmtiefni
Þær áskriftarstöðvar sem í fyrstu verða í boði eru eftirtaldar
Fréttastöðvar
• CNN
• CNBC
Barnarásir
• Foxkids (Jetix)
• Cartoon Network
Fræðslurásir
• Discovery
• National Geographic
Kvikimyndastöðvarnar
• Hallmark
• TCM
Íþróttarás
• Eurosport
Íslensku sjónvarpsstöðvarnar
• RÚV
• Skjár 1
• PoppTV
Áskriftarsíminn er 534-1700
Upplýsingar um þjónustuna er að finna á www.valplus.is og áskriftar- og þjónustusíminn er 534-1700.
Áskriftargjald Val+ er kr. 1.790 á mánuði.
Stofngjald er kr. 5.990.
Innifalinn er stafrænn myndlykill og loftnet
Áskrifendur greiða síðan sérstaklega fyrir uppsetningu ef þess er óskað.