Kynning á styrkveitingum atvinnulífs kvenna kl.20
Kynningarfundur um styrkveitingu Vinnumálastofnunar/ Félagsmálaráðuneytis, til atvinnulífs kvenna, verður á Flug Hóteli kl. 20 í kvöld. Auk kynninga á styrkjunum verður þjónusta Atvinnuráðgjafar SSS kynnt, erindi frá Byggðastofnun um konur og atvinnulíf og kona í atvinnurekstri segir frá reynslu sinni.
Vinnumálastofnun/Félagsmálaráðuneyti auglýsti á dögunum styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2008 og er umsóknarfrestur til 28.september.
Boðið verður upp á veitingar í lok fundar sem er áætlað kl.21.
Nánari upplýsingar á www.atvinnumalkvenna.is