Viðskipti

  • Kröfuhafar fá frest til morguns
  • Kröfuhafar fá frest til morguns
Fimmtudagur 4. febrúar 2016 kl. 11:41

Kröfuhafar fá frest til morguns

Þann 9. mars 2015 birti Reykjanesbær tilkynningu þess efnis að bæjaryfirvöld ættu í viðræðum við kröfuhafa um endurskipulagningu skuldbindinga bæjarfélagsins. Í tilkynningunni kom fram að ef viðræðurnar skila ekki árangri getur komið til greiðslufalls á skuldbindingum bæjarfélagsins í framtíðinni.

Í tilkynningu á vef Kauphallarinnar nú í morgun segir að viðræður við kröfuhafa standa enn yfir. Þann 29. janúar sl. sendi Reykjanesbær kröfuhöfum Eignarhaldsfélagsins fasteignar ehf., Glitni HoldCo f.h. Ríkissjóðs Íslands, Landsbankanum hf. og Íslandsbanka hf. bréf.

Í bréfinu var þessum kröfuhöfum veittur frestur til föstudagsins 5. febrúar n.k. til þess að bregðast við tillögu Reykjanesbæjar um afmörkun á skuldavanda sveitarfélagsins og niðurfærsluþörf skulda. Í bréfinu kemur einnig fram að náist ekki samkomulag um niðurfærsluþörf blasi við að óska eftir því við eftirlitsnefnd með málefnum sveitarfélaga að skipuð verði fjárhaldsstjórn.

Viðræður standa enn yfir og verður tilkynnt um niðurstöður þeirra að þeim loknum, segir í tilkynningunni sem undirrituð er af Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar.

Vísir.is segir frá því að Nasdaq Iceland hf. hafi ákveðið að stöðva viðskipti með skuldabréf Reykjanesbæjar, auðkenni RNB 08 1. Þetta kemur fram á vef Kauphallarinnar, en þar segir jafnframt að frekari upplýsingar verða veittar síðar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024