Bygg
Bygg

Viðskipti

Kompan fer í sumarfrí
Föstudagur 1. júlí 2011 kl. 09:14

Kompan fer í sumarfrí

Vegna sumarleyfis starfsmanna Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum verður nytjamarkaður Kompunnar lokaður frá og með næsta mánudegi. Það verður opið kl. 10:00-15:00 í dag föstudaginn 1. júlí, en síðan ekki aftur fyrr en föstudaginn 5. ágúst.

Kompan fluttist um set fyrr í sumar, fór úr húsi Rauða krossins og yfir til Fjölsmiðjunnar sem er í gamla Húsasmiðjuhúsinu við Smiðjuvelli í Reykjanesbæ. Þessi breyting hefur farið vel í Suðurnesjamenn sem hafa
verið duglegir að kíkja við og næla sér í ýmsa notaða nytjahluti á góðu verði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn