KFC í Reykjanesbæ fyrir Ljósanótt
Eins og glöggir Suðurnesjamenn ættu að taka eftir þá eru framkvæmdir við nýjan kjúklingastað í Reykjanesbæ hafnar. Íslenskir Aðalverktakar sjá um að reisa kjúklingastaðinn Kentucky Fried Chicken en staðurinn er mjög vinsæll meðal Suðurnesjamanna. Samkvæmt eigendum KFC á Íslandi þá mun staðurinn opna með haustinu. Eflaust má segja það að þeir sem halda upp á KFC séu nú þegar farnir að sjá djúpsteikta kjúklinga í hyllingum þegar þeir keyra framhjá byggingarsvæði staðarins.
VF-mynd: Atli kjúklingur Már Gylfason