HSS
HSS

Viðskipti

Fimmtudagur 8. mars 2001 kl. 10:01

Keflvíkurverktakar á Verðbréfaþing

Fyrsta heila ár Keflavíkurverktaka hf. í sameinuðu fyrirtæki gekk mjög vel og varð 101 milljóna króna hagnaður af rekstri eftir skatta á árinu 2000. Bragi Pálsson, stjórnarformaður segir afkomuna mjög ánægjulega ekki síst í ljósi ákveðinna erfiðleika fyrri part ársins. Verkefnastaða félagsins er mjög góð og með vorinu verða Keflavíkurverktakar skráðir á verðbréfamarkað, svokallaðan tilboðsmarkað sem er verið að setja á laggirnar. Páll Ketilsson hitti Braga, Róbert Trausta Árnason, forstjóra og Val Ketilsson, skrifstofustjóra að máli í höfuðstöðvum Keflavíkurverktaka á Keflavíkurflugvelli.

Sterkir inn í nýja öld
Sögu Keflavíkurverktaka þekkja flestir Suðurnesjamenn þó forráðamenn fyrirtækisins hafi verið sparir á stór orð og í raun haldið fjölmiðlum fjarri. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað í tugi ára og áunnið sér mikla velvild fyrir góða þjónustu við Varnarliðið. Á árinu 1998 var tekin sú ákvörðun að sameina aðildarfélög fyrirtækisins undir nafni Keflavíkurverktaka hf. Það var svo gert síðla októbermánaðar árið 1999. Árið 2000 reyndist fyrirtækinu farsælt þrátt fyrir erfiða byrjun og eigið fé félagsins í árslok var tæplega 1300 milljónir og hafði aukist um 70 milljónir á árinu.

Hækkun innra virðis
Samskiptaörðugleikar íslenskra og bandarískra stjórnvalda gerðu það að verkum að ekki náðust í hús hefðbundir verksamningar við Varnarliðið fyrr en líða tók á seinni hluta ársins 2000. Bragi segir að stjórnendur fyrirtækisins hafi undir haust ekki gert sér vonir um góða afkomu í ljósi þessara erfiðleika. Þessi mál leystust farsællega og reksturinn gekk mjög vel seinni part ársins og endaði sem fyrr segir í 101 milljón króna í hagnað eftir skatta. Innra virði fyrirtækisins, þ.e. gengi bréfa í Keflavíkurverktökum um mitt sl. ár 3,68 eftir að hafa verið í 3,8 til 4,0. Niðurstaða ársins var hins vegar gengið 4,1 sem er 12% hækkun.
Róbert Trausti Árnason sem tók við forstjórastöðu fyrirtækisins 1. apríl segir að fyrstu mánuðirnir í starfi hafi vissulega verið erfiðir en niðurstaða ársins hafi verið mjög ánægjuleg. „Það hefur verið góð samvinna innan stjórnar og við starfsmenn. Það er mikill mannauður í þessu fyrirtæki og vel hefur haldist á fólki en vissulega hefur þurft að beita miklu aðhaldi á öllum sviðum. Má nefna dæmi um fækkun starfsfólks á skrifstofu úr 28 í 14.

Á tilboðsmarkað
Stjórn Keflavíkurverktaka ákvað nýlega að skrá fyrirtækið á verðbréfamarkaði og er Jafet Ólafsson á Verðbréfastofunni með þá umsýslu en hingað til hefur fyrirtækið verið á svokölluðum gráum markaði. Valur Ketilsson, skrifstofustjóri segir að Keflavíkurverktakar verða skráðir á nýjum tilboðsmarkaði sem er verið að stofnsetja á Verðbréfaþingi Íslands. Þeir sem vilja sýsla með hlutabréf í fyrirtækinu geta því snúið sér til Verðbréfastofunnar.

Sterk verkefnastaða
Bragi Pálsson tekur undir þetta og segir að verkefnastaða Keflavíkurverktaka sé mjög góð á þessu ári. „Við leggjum áfram áherslu á góða þjónustu við Varnarliðið og við lítum björtum augum á framtíð starfseminnar á Keflavíkurflugvelli, bæði fyrir Varnarliðið og í tengslum við millilandaflugið þar sem mikill vöxtur er. Á síðustu tveimur árum hafa verkefni utan vallar aukist. Keflvíkurverktakar hafa unnið að uppsetningu á dreifikerfi fyrir GSM fyrir Tal, Íslandssíma og Línu.net. Við höfum skilað þessum verkefnum vel af okkur og þau hafa aukið orðstýr okkar. Þá má nefna fleiri verkefni utan vallar eins viðhald á rafmagni- og loftræstikerfi í Kringlunni í Reykjavík en í útboði nýlega að loknu forvali voru við lægstir. Í höfuðborginni eru einnig tíu starfsmenn KV í tveggja mánaða sérverkefni á sviði umhverfismála en það er hreinsun á asbesti í gufuaflsstöð Orkuveitu Reykjavíkur við Elliðaárnar en þetta verkefni hefur fengið nafnið „Asbesthöllin“ meðal starfsmanna KV. Nýjasta verkefnið utan vallar sem reyndar er á forvalsstigi ennþá er bygging félagslegra íbúða fyrir aldraða í Reykjanesbæ. Ef það verður að veruleika verður það fyrsta verkefni í langan tíma sem Keflavíkurverktakar byggja eftir alútboð og skila frá sér frá „a til ö“ segir Bragi.

Á síðustu árum hefur fyrirtækinu vaxið fiskur um hrygg í öðru en hreinni viðhaldsþjónustu fyrir Varnarliðið. Þar má nefna Húsun en það er deild sem stofnuð var innan KV árið 1993 og er nokkurs konar neyðarþjónusta. Húsun er með sólarhringsþjónustu fyrir varnarliðsmenn þannig að ef eitthvað gerist í íbúðum þeirra geta þeir hringt í starfsmenn Húsunar sem eru mættir að vörmu spori til þjónustu reiðubúnir. Einnig má nefna Billetting sem er hótelþjónusta fyrir Varnarliðið.

Varnarliðið 85-90% af veltu
Bragi segir að enn sé verkefni fyrir varnarliðið 85 til 90 % af veltu fyrirtækisins en sú tala fari lækkandi í ljósi nýrra verkefna fyrir utan vallarsvæðið. „Við stefnum að því að auka vægi ytri verkefna sem við leyfum okkur að kalla en það eru þau sem eru utan vallar“. Einkaréttur KV gagnvart starfsemi fyrir Varnarliðið mun ljúka í ársbyrjun 2004. Á þessu ári er þriðjungur verkefna boðin út, 2/3 verður boðin út á árinu 2002 og 2003 verður allt boðið út. Þetta er ákvörðun utanríkisráðuneytisins og hún tekin í fullu samráði við Varnarliðið en Keflavíkurverktakar hafa átt mjög góð samskipti við báða þessa aðila alla tíð.

Keflavíkurverktakar voru sameinaðir undir nafni Keflavíkurverktaka hf. 20. október 1999. Helstu stjórnendur fyrirtækisins í dag eru Bragi Pálsson, stjórnaraformaður, Róbert Trausti Árnason, forstjóri, Valur Ketilsson, skrifstofustjóri og Kári Arngrímsson, yfirverkfræðingur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn