Bygg
Bygg

Viðskipti

KB-Banki til Suðurnesja
Miðvikudagur 1. mars 2006 kl. 17:25

KB-Banki til Suðurnesja

KB-banki mun að öllum líkindum opna fyrsta útibú sitt á Suðurnesjum í sumar. Hermann Björnsson, rekstrarstjóri viðskiptabankasviðs hjá bankanum sagði í samtali við Víkurfréttir að þeir hefðu fullan hug á að hasla sér völl hér suður með sjó.

„Við höfum verið að skoða þessi mál af fullri alvöru að undanförnu og það eru allar líkur á því að við opnum útibú í Reykjanesbæ í sumar. Við erum í viðræðum um leigu á ákveðnu húsnæði í bænum, en það hefur ekki verið gengið frá því enn.“

Hermann bætti því avið að KB-banki sæi ótvíræða möguleika á svæðinu þrátt fyrir að fyrir séu rótgrónar bankastofnanir eins og Sparisjóðurinn í Keflavík, Landsbanki Íslands og Íslandsbanki. „Við sjáum það af því að nú þegar erum við með nokkuð af viðskiptavinum af Suðurnesjum sem skipta við útibú okkar í Hafnarfirði eða í Reykjavík. Það var einn stærsti þátturinn í ákvörðuninni um að opna útibú þar, en annars er svæðið í örum vexti sem virðist ekki vera að minnka þannig að við sjáum sóknarfæri.“

Hermann bætti því við að í væntanlegu útibúi yrði um fulla þjónustu að ræða jafnt með gjaldkerum sem og þjónustufulltrúum, en annars er ekki búið að taka ákvörðun um stærð útibússins eða fjölda starfsmanna.
Bílakjarninn
Bílakjarninn