Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Kapphlaupið mikla um ál-raforku hafið?
Sunnudagur 15. maí 2005 kl. 22:45

Kapphlaupið mikla um ál-raforku hafið?

Kapphlaup virðist hafið milli Norðuráls og Alcan, sem á álverið í Straumsvík, um að tryggja sér orku til meiri álframleiðslu Suðvestanlands. Bæði fyrirtækin hafa þreifað fyrir sér um orkukaup hjá Landsvirkjun. Stöð 2 greindi frá þessu í kvöld.


Fréttir bárust af því í gær að Suðurnesjamenn hefðu náð samkomulagi við Norðurálsmenn um að undirbúa byggingu álvers í Helguvík. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan, segir við Stöð 2 að mál Norðuráls hafi komið honum nokkuð á óvart en að forsvarsmenn fyrirtækisins séu þó ekki hræddir um að þetta skref hafi fært Alcan aftar í röðina. Enn standi til að byggja við álverið í Straumsvík og verið sé að skoða orkumálin í því tilliti.


Hrannar segir enn fremur að án þess að hann vilji gera lítið úr samkomulaginu sem tilkynnt var um í gær sé aðeins um ræða viljayfirlýsingu um að vinna áfram að málinu. Það sé í sjálfu sér það sem Alcan hafi gert á sínum vettvangi undanfarin ár og það sé langt í land. Álver sé ekki hrist fram úr erminni.
Hrannar segir orku ekki einungis frátekna fyrir Norðurál og hefur ekki áhyggjur yfir að Alcan hafi klúðrað sínu tækifæri um stækkun. Kannski þyki sumum Alcan hafa hangsað en félagið sé þeirrar skoðunar að góðir hlutir gerist hægt.


Andrés Svanbjörnsson, yfirverkfræðingur hjá viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu, segir í fréttum Stöðvar 2 að ekki kæmi á óvart að Alcan myndi hraða ferli sínu nú eftir yfirlýsingar Norðuráls. Það sé farið að þrengja um þá raforku sem sé fáanleg í grendinni með góðu móti. Alcan sé komið með umhverfismat og í raun ekkert annað eftir en að taka ákvörðun um fjárfestingu og bjóða verkefnið út. Það taki stuttan tíma. Alcan sé því í raun komið mun lengra en aðrir í ferlinu.


Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir bæði Norðurál og Alcan hafa verið í sambandi við Landsvirkjun vegna orkumála. Ekki séu þó neinar formlegar samningaviðræður í gangi. Ljóst þyrkir þó að samkeppni milli fyrirtækjanna sé fram undan.

www.visir.is

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024