Kadeco og Keilir með athyglisverðasta sýningarsvæðið
KADECO og Keilir þóttu vera með athyglisverðustu sýningarsvæðin á sýningunni Reykjanes 2009 sem lauk í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ í gær. Einnig hlutu Norðurál og Efla verðlaun fyrir sín svæði.
Sýningin Reykjanes 2009 stóð yfir í Íþróttaakademíunni í þrjá daga á ljósanótt. Fjöldi gesta heimsótti sýninguna, þar sem yfir 50 sýnendur kynntu það nýjasta í uppbyggingu atvinnulífs á Reykjanesi, þjónustu og fjölbreytt handverk.
Norðurál lenti í þriðja sæti en sýningarsvæði þeirra þótti opið, myndrænt og þjóna vel upplýsingahlutverki sínu. Efla lenti verðskuldað í öðru sæti enda hefur sýningarsvæði þeirra vakið mikla athygli fyrir stórt fiskabúr sem byggt er inn í vegg sýningarsvæðisins. Það þótti dómnefnd gefa góða hreyfingu, auk þess sem allt útlit svæðisins var smekklegt og stílhreint. Kadeco / Keilir hrepptu svo fyrsta sætið fyrir athyglisverðasta sýningarsvæðið að mati dómnefndar. Sýningarsvæði þeirra þótti upplýsandi, vel afmarkað og sniðuglega skipulagt með stórum vegg sem sýndi tímalínu félaganna á einfaldan og skilmerkilegan hátt.
Það var Elsa Giljan Kristjánsdóttir, sýningarstjóri Reykjaness 2009, sem afhenti verðlaunin, en með henni í dómnefnd voru þau Kristján Pétur Kristjánsson, ráðgjafi hjá Kapex og Ólafía Ólafsdóttir innanhússarkitekt. Elsa hrósaði sérstaklega þremur sýningarsvæðum til viðbótar sem þó komust ekki á verðlaunapall, en það voru svæði Urtasmiðjunnar, Íslenska gámafélagsins og Reykjanesbæjar.